Sunnudagurinn 14. janúar
Enn gýs á Reykjanesi, nú alveg við Grindavík og rétt í þessu steig Margrét Þórhildur frá sem drottning Dana og Friðrik varð kóngur Danmerkur, Færeyja og Grænlands.
Við höldum áfram að leggja á ráðin á nýju ári. Til að fylgja eftir nýársbréfinu frá liðinni viku þar sem við hvöttum til þess að ferðalög ársins til útlanda yrðu tengd áhugaverðum menningarviðburðum fannst okkur við hæfi að benda á dagsetningar nokkurra valdra hátíða hérlendis á komandi ári. Það er auðvitað álíka gaman að heimsækja ólíka landshluta og eiga skemmtileg erindi. Svo gæti líka verið sniðugt að senda vinum erlendis heimboð á HönnunarMars, í Hornstrandaferð eða Hamraborgarfestival. Listinn er ekki tæmandi, enda sérvalinn og sannarlega spennandi.
Bréfið er að þessu sinni ekki sent einungis til áskrifenda heldur á allan póstlistann okkar, sem við sinnum víst ósköp lítið en setjum allt púður í áskriftarbréfin okkar sem eru send út annanhvern sunnudag. Áskrifendur geta látið sig hlakka til hefðbundinna menningarmola að viku liðinni og við tökum skríkjandi glöð á móti nýjum.
Með sunnudagskaffinu í dag 📅
I. Hátíðaárið 2024
- Lagalisti: Vetrartónar
Eftirskrift: Tove í Spilara RÚV og ný þáttaröð Carmenrúllanna.
Nokkrar vel valdar hátíðir á Íslandi 2024
Hátíðadagatal Eddu og Greips
Myrkir Músíkdagar, 24.–28. janúar
Reykjavík
Við erum þegar byrjuð að kynna okkur dagskrána og í næsta bréfi má reikna með meðmælum um eina tónleika hátíðarinnar.
Tónleikar hátíðarinnar hafa ratað á síður okkar, til að mynda lokatónleikarnir 2020.
Skíðavikan og Aldrei fór ég suður, 29.–31. mars (páskar)
Ísafjörður
Það getur verið frústrerandi að vakna upp við það í dymbilviku að hafa ekki gert plön fyrir páskafríið. Ísafjörður iðar af lífi um páska en þar fer fram ein elsta bæjarhátíð landsins, Skíðavikan. Í dagskránni ber hæst rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, sem nú fagnar 20 ára afmæli.
HönnunarMars, 24.–28. apríl
Reykjavík
HönnunarMars hefur oftast verið í mars, einu sinni í júní og tvisvar í maí. Alltaf er hann boðberi vors og sumars. Í ár boðar hann sannarlega komu sumars, hefst á síðasta vetrardegi og stendur fyrstu daga þess.
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, 17.–20. maí (hvítasunna)
Patreksfjörður
Dagskrá Skjaldborgarhátíðarinnar birtist oft seint en það skiptir engu máli. Það er alltaf upplifun að skella sér í fyrstu vorferðina vestur og upplifa einstaka stemmingu sem skapast á hátíðinni.
Bókverkamarkaðurinn í Reykjavík, 23.–26. maí
Reykjavík
Bókverkamarkaðurinn í Reykjavík (Reykjavik Art Book Fair) fer fram í Hafnarhúsi. Hann á sér hliðstæður í borgum víða um heim þar sem koma saman hérlend og erlend forlög, útgefendur og listamenn sem selja verk sín milliliðalaust. Upplagt að kíkja, grúska, auðga andann og sötra kaffi.
Við skrifuðum meðmæli með þessum hressandi bókverkamarkaði í aðdraganda hans á síðasta ári.
Listahátíð í Reykjavík, 1.–16. júní
Reykjavík (og Akureyri)
Þó Listahátíð eigi heima í Reykjavík er oft að finna skemmtilega viðburði annarsstaðar líka. Til dæmis opnar spennandi samsýning norrænna listamanna í Listasafni Akureyrar 7. júní
Tónlistarhátíðin Við Djúpið, 17.–22. júní
Ísafjörður
Metnaðarfull kammertónlistarhátíð á Ísafirði. Við mælum sérstaklega með að áskrifendur skelli sér síðari hluta hátíðarinnar, komi vestur 19. eða 20. júní.
Lagalisti: Winter Music
Meðan við látum okkur hlakka til sumarsins og endalausu birtunnar er um að gera að njóta vetrar og myrkurs. Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefur sent frá sér huggulegan lagalista sem hentar bæði undir teppi eða við vinnuna þegar þarf að skerpa fókus.
Listahátíð LungA, 14.–21. júlí
Seyðisfjörður
LungA hátíðin fagnar hvorki meira né minna en 25 ára afmæli í sumar! Á þessari mjög svo líflegu og fallegu listahátíð í austrinu koma saman listamenn og listunnendur víðsvegar að. Í kjölfar vinnustofa mála fjölmargar sýningar, viðburðir og stórir tónleikar bæinn í öllum regnbogans litum.
Sumartónleikar í Skálholti, 6.–13. júlí
Skálholt
Það er alltaf hátíðlegt að koma í Skálholt og að ganga út úr dómkirkjunni að afloknum tónleikum er á stundum mögnuð upplifun. Sumartónleikar í Skálholti er ein elsta tónlistarhátíð landsins og um að gera að skoða hvort ekki sé hægt að næla sér í bústað hjá stéttarfélaginu í nágrenninu á þeim dögum sem tónleikahald stendur yfir. Við ætlum til dæmis að vera í Skálholti 13. júlí.
Hér skapast tækifæri til að rifja upp helgistundir á hásumri frá 2021.
Hornstrandir Film Festival, 14.–22. júlí
Hornstrandir
Hægt er að stilla Hornstrandagöngu og menningarhátíð saman með því að stefna í friðlandið á sama tíma og Hornstrandir Film Festival stendur yfir. Hátíðin fer fram öðru sinni í sumar.
Hamraborg Festival, 21.–28. ágúst
Kópavogur
Listahátíð sem hefur vaxið og dafnað skemmtilega á undanförnum árum og fer öll fram við Hamraborgina bæði í þar til gerðum sýningarrýmum og á óvæntum stöðum inni og úti.
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, 26. sep.–6. okt.
Reykjavík
Við höfum mikið dálæti á RIFF, þetta eru dagar sem er gott og gaman að vera í Reykjavík, það er eins og heimurinn opnist í borginni.
HEAD2HEAD, opnunarhelgi 11.–13. október
Reykjavík
Listamannareknu rýmin Kling&Bang í Marshallhúsinu og A – DASH sem er í Aþenu og rekið af íslenskum og grískum listamönnum standa fyrir seinni hluta frábærrar myndlistarhátíðar en sá fyrri sem fór fram í Aþenu var eftirminnilegur og fullkomin leið til að kynnast listamannareknu senunni í Aþenu. Gestir voru leiddir áfram á milli opnana og draumkenndur andi sveif yfir. Sýningar opna í Kling&Bang og víðar og standa mislengi eftir sýningarstöðum.
Reykjavík Dance Festival, 13.–17. nóvember
Reykjavík
Það er reynsla okkar að danshátíðin bjóði alltaf upp á eitthvað mjög spennandi og oftar en ekki eitthvað óvænt.
Með góðum kveðjum,
Edda og Greipur
Eftirskrift 📺
RÚV sýndi á sunnudagskvöld finnsku kvikmyndina Tove sem fjallar um umbrotaár í lífi listakonunnar. Við skrifuðum um myndina í apríl 2022 þegar hún var til sýninga í Bíó Paradís. Tove er nú aðgengileg í Spilara RÚV og verður til 6. febrúar. Mælum eindregið með!
Á sunnudag var líka á dagskrá RÚV fyrsti þáttur annarrar þáttaraðar Carmenrúllanna en fyrsta þáttaröðin fékk meðmæli okkar í nóvember 2022. Þættirnir verða á dagskrá næstu sunnudagskvöld en fyrir óþreyjufulla má benda á að þeir eru allir aðgengilegir í Spilaranum.
Kærar þakkir fyrir leiðarvísi á merka menningaviðburði ársins!