Fyrir helgi birtist í Morgblaðinu viðtal við okkur. Þar sögðum við frá hálfsmánaðarlega meðmælabréfinu okkar og ræddum menningarlífið í Reykjavík í nokkrum setningum.
-Hvað finnst ykkur mest spennandi við menningarlífið í Reykjavík?
„Það er ólgandi kraftur í því og hér ríkir einhugur um að menning sé mikilvæg. Það sést vel á listamannalaunum til dæmis, að þau séu yfirhöfuð til, sem er stórkostlegt. Ég hef mjög gaman af litlum sýningarstöðum, til dæmis heimagalleríum og alls konar hreyfanlegri eða tímabundinni starfsemi. Hvatinn á bak við hana er oft annar en hjá stóru stofnununum og algerlega skilyrðislaus. Það er nauðsynlegt að hafa það í bland við þrautseigu listamannareknu rýmin, söfnin, galleríin og alla hina menningarstaðina,“ segir Edda.
Mynd: Eggert Jóhannesson fyrir Mbl.is
„Það er svo mikið um að vera og það er svo gaman. Og allt í graut. Við erum ótrúlega heppin hér. Hingað vilja koma heimsins færustu og fremstu listamenn og jafnvel stilla saman strengi sína með okkar fólki. Þetta hefur verið drifkraftur lengi og úr því myndast tengingar sem eru svo skemmtilegar,“ segir Greipur.
„Svo er hér í boði klassa háskólamenntun í listum í Listaháskólanum, sem ekki skal vanmeta. Þar er mikill suðupottur. Mér finnst alltaf gaman að fylgjast með því sem næstu kynslóðir listamanna eru að gera. Já, og afleiðan af þessari lagköku er auðvitað sprúðlandi menningarlíf, alger bragðsprengja,“ segir Edda.
Sérvaldir molar í valin pósthólf
Sérvaldir molar í valin pósthólf
Sérvaldir molar í valin pósthólf
Fyrir helgi birtist í Morgblaðinu viðtal við okkur. Þar sögðum við frá hálfsmánaðarlega meðmælabréfinu okkar og ræddum menningarlífið í Reykjavík í nokkrum setningum.
Mynd: Eggert Jóhannesson fyrir Mbl.is
Viðtalið má nú lesa í heild á Mbl.is
Kveðja,
Edda og Greipur