Hér við Faxaflóa finnum við sannarlega fyrir því að dagurinn, lengist jafnt og þétt og nú er ekki nema rúmur mánuður í jafndægur. Í bréfi dagsins skiptast á myrkur og birta. Við lítum til björtustu daga sumarsins og fræðumst um finnskan gest við Djúp um sumarsólstöður. En úr Djúpinu kemur líka draugasaga þar sem myrkrið er með yfirhöndina. Enn nýr gestapenni, Guðfinnur Sveinsson, skrifar um bjarta og fallega óperusýningu og við rifjum upp skrif frá Feneyjum.
Við nefndum að sýning Hildigunnar Birgisdóttur opnaði um helgina í Listasafni Íslands. Hún var gestir Sigurlaugar í Segðu mér í gær.
https://open.spotify.com/episode/2kosAa65legXbkz6eAW4mI?si=3a42c606e75944de