Sunnudagurinn 5. nóvember
Kæru áskrifendur. Hér kemur hundraðasta fréttabréfið úr smiðju okkar. Okkur óraði ekki fyrir því að þessi skrif yrðu svona lífseig en við höfum notið næstum hverrar mínútu og hlökkum til framhaldsins. Undanfarið hafa margir nýir áskrifendur bæst í hópinn og við bjóðum þau velkomin um leið og við þökkum okkar dyggustu lesendum samfylgdina í gegnum árin fjögur.
Í tilefni dagsins eru molarnir sérstaklega hátíðlegir, þó aðeins sigi í líka, enda ekki vanþörf á að lyfta andanum eilítið en næra rótfestuna um leið. Við vonum að skrif um safngripi úr Louvre og Rijks, eldblómaveigar og verðlaunahönnun renni ljúflega niður með sunnudagskaffinu, ekki síst vegna óvæntra glaðninga sem leynast í safaríkum molunum.
Við létum gott tækifæri til að búa til góða stemmingu ekki úr greipum okkar renna og skáluðum á föstudag fyrir þessu hundraðasta fréttabréfi.
Með sunnudagskaffi og köku í dag 🍰
I. Eldblóm x Héðinn,
- Lagalisti Eddu og Greips,
II. Jarðsetning, áhorf fyrir áskrifendur næstu vikuna,
III. Með verkum handanna í Þjóðminjasafninu,
- Eftirskrift: Nokkrir eftirminnilegir titlar fréttabréfa úr bunkanum.
Keep reading with a 7-day free trial
Subscribe to Edda og Greipur mæla með to keep reading this post and get 7 days of free access to the full post archives.