Sunnudagurinn 6. júní
Það má búast við því á næstu vikum að við mælum með ferð út fyrir borgarmörkin en það er ekki komið að því núna. Hér koma þrír molar úr Reykjavík. Tvennir tónleikar og myndlistarsýning sem við mælum í raun með að skoða eins og tónleika. Allir molarnir eru afrakstur samstarfs hóps fólks og góð dæmi um hvernig listamenn vinna náttúrulega þvers og kruss.
Með sunnudagskaffinu ☀️
I. feigðarós – dreamfields í Kling&Bang
- Við erum að hlusta,
II. Kammerklúbbur Máls og menningar
III. Benni Hemm Hemm í Neskirkju
I. feigðarós – dreamfields
feigðarós – dreamfields,
Kling&Bang, Grandagarði 20.
Sýningin er opin til 4. júlí, 2021.
Um nokkuð langa hríð hafa þrír listamenn unnið sem einn, Anna Hrund Másdóttir, Steinunn Önnudóttir og Ragnheiður Káradóttir sem sýna nú umfangsmikla innsetningu í Kling&Bang. Sýninguna kalla þær feigðarós - dreamfields sem kemur huganum strax á hreyfingu. Um samstarfið segir listamaðurinn meðal annars að með því megi
...deila ábyrgð, læra að gefa pláss og taka pláss, taka af skarið og að láta leiða sig. Læra að treysta ferðinni og leyfa hlutum að hvíla þegar þeir þurfa meiri tíma. Læra að passa upp á móralinn, huga að líðan annarra og gefa öllum pláss til að skína.
Mér finnst þessi orð lýsa gæðum sjálfsprottins samstarfs vel og vera til eftirbreytni.
Við mælum með að nálgast sýninguna eins og tónleika. Dvelja aðeins í fordyrinu og velta vöngum yfir því sem koma skal, kannski lesa sýningatextann sem fylgir – kannski ekki, spjalla ef það á við. Í fordyrinu hefur verið hugað að hverju smáatriði hvort sem það er veggtextinn sem út af fyrir sig er mjög fallegur og skorinn í litríka glansfilmu. Letur Guðmundar Inga Úlfarssonar leturhönnuðar nýtur sín sérlega vel á veggnum og í fallegu bókverki sem fylgir sýningunni og slær tóninn eða myndar jafnvel ákveðna umgjörð um karakter sýningarinnar.
Eftir dvöl í fordyrinu mælum við með að ganga í fyrsta salinn og taka góða stund í að upplifa fyrsta kaflann, feykistórt málverk. Hvarfa að honum loknum í næsta sal og að sjálfum feigðarósinum. Taka stemninguna inn með öllum skilningarvitum og skoða gaumgæfilega út frá ólíkum sjónarhornum. Margt forvitnilegt leynist við ósinn. Hægt er að tylla sér á einhverja gluggasilluna, leggja vel við hlustir og horfa úr annarri hæð. Þegar endalokin nálgast að hugsa sér til hreyfings og eigra inn í rannsakandi lokakaflann. Endurtaka má hringinn, jafnvel hring eftir hring.
Feigðarósinum fylgir innihaldsríkt bókverk sem í rita texta á eigin forsendum nokkrir af okkar forvitnilegri skáldum og rithöfundum, Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Tyrfingur Tyrfingsson og Gunnar Theodór Eggertsson. Það hefur einnig að geyma æðislegar ljósmyndir úr lokakaflanum, prentaðar á pappír sem kemur þeim vel til skila, ólíkt mörgum útgáfum nútímans. Vert er einnig að benda á að lokakaflinn hefur að geyma verk sem vel gætu farið heima í stofu og mætti því hugsa sér að færa hljóm úr tónverkinu með sér út úr sýningarrýminu.
Ég held ég leyfi ykkur að fara í eigið ferðalag og njóta án frekari orða minna en lýk meðmælunum á orðum að láni frá Tyrfingi.
Til að hugsa út fyrir tvíhyggjuna er nauðsynlegt að átta sig á að öll slík andstæðupör eru tengd og föst saman í flæði sem ekki er hægt að skipta í tvennt.
Við erum að hlusta ⛲️
Það má segja að þemað á lagalistanum núna sé vinir fréttabréfsins. Eins og oft áður er allskonar að finna á honum: Nýjan fiðlukonsert, eldri íslenska fiðlusónötu og glænýtt lag í bland við eldra efni og vatnatónlist eftir Messiaen.
II. Kammertónlist í bókabúð
Kammerklúbbur Bókabúða Máls og menningar,
Laugavegi 18.
Laugardaginn 12. júní kl. 17.
Okkur langar að beina sjónum lesenda að nýju verkefni í miðborginni. Við Laugaveg þar sem bókabúð Máls og menningar var um árabil hefur nú opnað kaffi- og veitingahús undir sama nafni. Við höfum reyndar ekki enn lagt leið okkar þangað en heyrðum af skemmtilegri nýjung sem lítur dagsins ljós á laugardag.
Kammerklúbbur Bókabúða Máls og menningar (skil ekki fleirtölunafnið en gott og vel) hefur göngu sína á laugardag. Þessu fögnum við mjög enda sannarlega rými fyrir viðbætur og þróun í kammertónlistarsenu landsins. Án þess að vita mikið um framtakið vitum við þó að á fyrstu tónleikunum stígur á stokk einvala lið tónlistarkvenna, þær Guðrún Dalía Salómonsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Júlía Mogensen og Melkorka Ólafsdóttir.
Af myndum af dæma er umhverfið sem kammertónleikarnir í bókabúðinni forfrægu verða nokkuð huggulegt og því má reikna með að laugardagssíðdegið verði ánægjulegt.
Okkur finnst þetta framtak þess virði að benda á og hvetja áhugasama til að fylgjast með frá fyrsta degi án þess þó að vita nákvæmlega hvernig þetta fer. Því er nefnilega þannig farið og jafnvel enn frekar nú en fyrir tíma heimsfaraldurs að við íbúar þurfum að versla við og styðja við þá starfsemi sem við viljum að lifi af í borginni okkar, hvort sem það eru fjölskyldureknu veitingastaðirnir, verslanir einyrkjanna, sýningarstaðirnir nú eða menningarbókabúðir. Efnisskrá þessara fyrstu tónleika klúbbsins er líka girnileg. Þar má nefna tónlist eftir Ravel og Messiaen, Debussy og fleiri.
III. Júní er tilfinning
Benni Hemm Hemm á tónleikum,
Neskirkja við Hagatorg.
Föstudaginn 11. júní kl. 20.
Júní er tilfinning segir í skemmtilegri tilkynningu frá Benna Hemm Hemm sem heldur tónleika í Neskirkju á föstudaginn í tilefni af útgáfu nýrrar plötu. Í tilkynningunni kemur einnig fram að lögin eru öll samin í júnímánuðum sem mér fannst gaman að vita, enda mikið júníbarn.
Ég man þegar ég heyrði tónlist Benna Hemm Hemm fyrst og hugsaði þá með mér hvað það væri skrýtið að velja að vera tónlistarmaður þegar maður syngi svo falskt. Heyrði skömmu síðar viðtal við hann í útvarpinu sem hafði held ég áhrif á viðhorf mitt til lífsins. Hann talaði um að hver og einn ætti bara að syngja með eigin nefi ef hann langaði og vera ekkert að spá í hvað öðrum fyndist. Hann var ábyggileg ekkert falskur, það kvað bara við nýjan tón í mín eyru sem vakti forvitni mína.
Það er líka eins og Benni sé stöðugt forvitinn, sem ég held að sé dýrmætur eiginleiki. Hann hefur gefið út nokkrar plötur og mörg myndbönd sem hafa glatt mig, ljóðabókina Skordýr sem er mjög skemmtileg og í síauknum mæli unnið með fleiri listamönnum sem gera sitt með sínu nefi. Slíkt er uppi á teningnum í Neskirkju á föstudaginn þar sem margir listamenn koma fram og hugað er sérstaklega að sjónrænu útfærslunni. Svo verður líka leynigestur, sem er lokkandi fyrir forvitna.
Benni fékk verðskuldaða tilnefningu sem textahöfundur ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum síðustu, enda textar hans oft mjög frjóir, ævintýralegir og raunsæir í senn. Við höfum trú á að þetta verði gott kvöld í Neskirkju, sem er alltaf gaman að koma í enda orðin einn af fastapunktum samtímamenningar í Reykjavík og húsið sjálft út af fyrir sig er áhugavert og á sér skondna sögu sem við sögðum frá í fyrra fréttabréfi. Við mælum með þessari júní stemningu.
Með kærri kveðju,
Edda og Greipur.
Við minnum á að áskrifendur geta lesið öll fyrri frétta bréf á safnsíðu okkar, eddaoggreipur.substack.com. Það má vel ver að það leynist eitthvað sem má endurnýta.