Eitthvað úr engu, Agnes Joy og Sinfó
Sjóðheitir molar úr reykvískri menningu með sunnudagskaffinu
Sunnudagurinn 20. október 2019
Á komandi vikum er vert að huga að skipulagi vetrarins og kaupa kort hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Við mælum með samsetningu á fjölbreyttu Regnbogakorti fyrir áskrifendur okkar, bíóferð á nýja íslenska mynd og jafnvel endurteknum heimsóknum á sýningu magnaðs höfundaverks myndlistarmannsins Magnúsar Pálssonar.
I. Agnes Joy frá Akranesi í bíó
Um helgina hófust sýningar á nýrri íslenskri kvikmynd eftir Silju Hauksdóttur. Agnes Joy segir frá mæðgunum Rannveigu (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) og Agnesi (Donna Cruz) á sannan og einlægan hátt.
Silja Hauksdóttir skrifar handritið að myndinni ásamt þeim Göggu Jónsdóttur og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Þetta er önnur mynd Silju í fullri lengd en áður leikstýrði hún Dís (2004). Þá hefur hún leikstýrt fyrir sjónvarp, meðal annars Ástríði, Ríkinu og Áramótaskaupinu 2008.
Agnes Joy var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Busan í Suður Kóreu fyrr í mánuðinum við góðar undirtektir. Þaðan sendi aðalleikkonan Donna Cruz smá skeyti heim með hjálp RÚV Núll:
Í mars frumsýnir Þjóðleikhúsið svo nýja leikgerð Silju og Ilmar Kristjánsdóttur byggða á bókinni Kópavogskrónika eftir Kamillu Einarsdóttur sem kom út í fyrra.
Agnes Joy
Sýnd í Háskólabíói, Smárabíói og Borgarbíói.
II. Regnbogi hjá Sinfóníunni
Nýtt starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands er komið á fullan snúning. Það getur verið mjög erfitt að velja tónleika úr ótrúlegri dagskrá vetrarins. Við tökum því ómakið af lesendum okkar og veljum hér ferna tónleika sem við mælum með.
Svo skemmtilega vill til að kaupi maður ferna tónleika í einu dugar það sem Regnboga-áskrift hjá Sinfóníunni og hún veitir 20% afslátt af heildarmiðaverðinu. Athugaðu að hægt er að hafa áhrif á verð kortsins með því að breyta um sæti þegar þú hefur valið tónleika í kortið. Sniðugt ekki satt?
Víkingur og Daníel – 8. nóvember
Fyrir um áratug stígur Daníel Bjarnason fram á sjónvarsviðið sem tónskáld. Þann 12. febrúar 2009 var stór dagur en þá stjórnaði hann ekki bara Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn heldur stjórnaði hann frumflutningi á píanókonserti sínum, Processions. Einleikari á tónleikunum í Háskólabíói fyrir 10 árum var Víkingur Heiðar Ólafsson. Síðan þá hafa þeir allir þrír; Daníel, Víkingur og konsertinn hlotið athygli víða um heim; Daníel skrifar risaverk fyrir Los Angeles-fílharmóníuna sem verður frumflutt á fimmtudag og á miðvikudag hlaut Víkingur nafnbótina listamaður ársins hjá tímaritinu Gramophone.
Og nú er komið að endurfundum á Íslandi. Tónleikarnir eru upphitun fyrir tónleikaferð Sinfóníunnar til Þýskalands og Austurríkis og á dagskrá eru verkin sem munu hljóma í ferðinni.
Dimitri Þór og Sibelíus – 28. nóvember
Í vor var tilkynnt um ráðningu finnska hljómsveitarstjórans Eva Ollikainen í starf aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún tekur við stöðunni næsta haust en hitar upp í vetur með því a stjórna tvennum tónleikum. Á þeim fyrri þann 28. nóvember leikur Dimitri Þór Ashkenazy einleik á klarínett. Hann hefur komið víða fram en lék síðast með hljómsveitinni fyrir rúmum 10 árum.
Mahler og Debussy – 21. febrúar
Hannu Lintu er finnskur hljómsveitarstjóri. Hann er aðalhljómsveitarstjóri Finnsku útvarpshljómsveitarinnar og hefur nokkrum sinnum komið og stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fyrsta starfsár hljómsveitarinnar í Hörpu leik hljómsveitin allar níu sinfóníur Beethovens undir hans stjórn. Dagskrá tónleikanna í febrúar er mjög girnileg. Bandaríska söngkonan Michelle DeYoung syngur flokk söngva eftir Gustav Mahler en eftir hlé hljóma tvö verk tengd hafinu. Það eru sjávarmyndir úr óperunni Peter Grimes eftir Benjamin Britten og Hafið, La mer, eftir Claude Debussy. Hér fylgir upptaka frá tónleikum Sinfó þar sem Daníel Bjarnason stjórnar La mer:
AIŌN 1. apríl
Eftir að hafa nefnt þrenna frekar hefðbundna en um leið fjölbreytta tónleika hljómsveitarinnar á tónleikaárinu langar okkur að benda á mjög spennandi tónleika og danssýningu 1. apríl. Þar leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands nýtt tónverk Önnu Þorvaldsdóttur AIŌN sem samið er fyrir Íslenska dansflokkinn, hljósveitina og Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar. Dansflokkurinn frumflutti dansverk Ernu Ómarsdóttur við verkið í maí í Gautaborg fyrir fullu húsi og nú er komið að Reykjavík.
III. Magnús Pálsson í Hafnarhúsi
Þyrlulending, hundur að hverfa, afsteypa af hljómsveit og bókverk úr bílflaki er sumt af því sem kemur við sögu í ævintýralegum verkum Magnúsar Pálssonar. Ekkert úr engu er yfirskrift sýningarinnar sem stendur nú yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, og er sýning sem vert er að heimsækja oftar en einu sinni, enda er þar að finna mikla næringu fyrir ímyndunaraflið.
Magnús Pálsson og fleiri af hans samtíðarmönnum og konum í listinni höfðu gríðarleg áhrif á þróun listalífsins á Íslandi og var hann einn af þeim fyrstu sem hóf að vinna í marga miðla og unnu verk sín í ríkulegu samstarfi við aðra og glöggt má sjá áhrif þess á þær kynslóðir listamanna sem á eftir fylgdu. Magnús hefur alla tíð haft ástríðu fyrir kennslu og haft mikil áhrif á nám og kennslu í listum á Íslandi og þá ríku hefð sem er fyrir því að starfandi listamenn kenni á öllum skólastigum.
Sýningin nær yfir hluta höfundaverks Magnúsar en árið 2013 voru gjörningar Magnúsar teknir fyrir á sýningunni Lúðurhljómur í skókassa. Ekkert úr engu býður upp á fjölmörg verk, sem vert er að veita athygli hverju um sig.
Hafnarhús Listasafns Reykjavíkur, opin til 12. janúar 2019
Með kveðju,
Edda og Greipur
Við erum að hlusta á nýtt lag Benna Hemm Hemm, Miklabraut, Draumaprinsinn úr Agnesi Joy og fiðlusónötu Cécars Francks sem Joshua Bell og Alessio Bax spila á tónleikum í kvöld.
Edda og Greipur mæla með er fréttabréf sem inniheldur mola úr reykvísku menningarlífi sem við höfum valið af kostgæfni fyrir áskrifendur okkar. Bréfið berst passlega fyrir sunnudagskaffið aðra hverja viku.
Allar ábendingar og athugasemdir eru velkomnar. Þeim má koma til skila með því að svara þessum pósti.